Glæsileg suðurför
Nú eru Ernishálsar komnir aftur til byggða eftir afrekaför á Suðurlandið. Er skemmst frá því að segja að kórinn sló í gegn í Reykjavík og tryllti lýðinn gersamlega í Hreppunum. Við þökkum kærlega fyrir samstarfið við Raddbandafélag Reykjavíkur, Karlakór Hreppamanna og Karlakórinn Víkinga. Það er mikils virði að kynnast nýjum vinum og mynda tengsl sem víðast um landið við alhliða snillinga í öðrum kórum. Mest um verður er sá góði hristingur og dýrmæti að veltast um á milli tónleikastaða í langferðabíl með sínum eigin félögum - þar bindast hin traustu tengsl sem tryggja hér vort ból, eins og segir í þjóðsöng Skutulsfjarðar.
Nú fer að bresta á hlé í starfinu eftir lokahittinginn hjá Skáld-Viðari á föstudaginn (11. maí) og svo horfum við vonarbjörtum augum til hausts og nýrra áskorana hvort sem þær verða í formi utanlandsferðar, nýjunga í framgöngu og fylgihlutaburði á sviði eða raddbeitingarsvipu söngstjórans!
Fram til sóknar,
Hreinn Þorkelsson ferðarleiðari

