Sagan:
Karlakórastarf í Bolungarvík
Starfssemi karlakóra á sér allnokkra sögu í Bolungarvík.
Fyrsti karlakór sem heimildir eru til um, var Karlakór
Ungmennafélags Bolungarvíkur. Hann var stofnaður árið 1915.
Stjórnandi hans var Halldór Hávarðarson.
Rúmlega tuttugu árum síðar, í janúar 1936, var hins vegar
stofnaður Karlakór Bolungarvíkur, sem telja má undanfara
Karlakórsins Ægis í Bolungarvík. Íbúar Bolungarvíkur voru þá
tæplega 700 talsins.
Fyrsti stjórnandi kórsins var Sr. Páll Sigurðsson sóknarprestur
í Bolungarvík. Á tíu ára afmæli kórsins sagði einn kórfélaga,
Finnbogi Bernódusson, hinn kunni fræðaþulur, að sér. Páll hefði
verið „sá eldstólpi sem sífellt hefir gengið á undan og hvatt til
dáða og áframhalds". Séra Páll var söngstjóri kórsins á meðan hans
naut við, en hann lést árið 1949.
Á ýmsu gekk í starfssemi kórsins á árunum er á eftir komu.
Stundum var lítil starfssemi, en jafnan reyndu félagar að æfa
dagskrá til flutnings á sjómannadeginum, enda er sá dagur einn
helsti hátíðisdagur byggðarlagsins.
Sigurður E. Friðriksson var um mörg ár helsta driffjöturinn í
starfi kórsins og stjórnaði honum lengi. Um tíma var Kristján
Júlíusson, kennari, stjórnandi kórsins og naut líka fulltingis
Sigríðar Nordquist, tónlistarkennara. Hún hafði um langt árabil
verið máttarstólpi í tónlistarlífi Bolungarvíkur.
Eftir að Ólafur Kristjánsson fyrrum bæjarstjóri í Bolungarvík
réðst til starfa sem skólastjóri Tónlistarskóla Bolungarvíkur
stjórnaði hann karlakórnum lengst af.
Séra Gunnar Björnsson tók við stjórn karlakórsins árið 1980 og
gegndi henni fram til ársins 1982. Á þeim árum var meðal annars
farið í vel heppnaða söngferð til Færeyja eða vorið 1981.
Frá því á haustdögum 1982 stjórnaði Ólafur Kristjánsson
Karlakórnum Ægi í Bolungarvík eða þar til sameiginlegur kór var
stofnaður 1983, Karlakórinn Ernir, norðanverðum Vestfjörðum.
Karlakór Ísafjarðar
Karlakór Ísafjarðar var stofnaður 5. maí 1922. Þeir menn sem
nefndir eru til sögunnar á þessum undirbúningsstofnfundi voru þeir
Jón Hróbjartsson, kennari, Sigurgeir Sigurðsson prestur, Ólafur
Pálsson kaupmaður , Jónas Tómasson bóksali og Þórður Jóhannsson
úrsmiður. Segir í fundargerð „að einhverjir vildu fresta
kórstofnun" en þó varð kórinn í heiminn borinn á þessum fundi, 5.
maí 1922 og nefndur Karlakór Ísafjarðar, að tillögu Ólafs
Pálssonar.
Eins og gefur að skilja skiptust á skin og skúrir í lífi
Karlakórs Ísafjarðar allt frá stofnun hans. Þau skeið komu, sem
kórinn lág í hýði, lengur eða skemur eftir atvikum, en þó var mest
um vert að alltaf auðnaðist honum framhaldslíf og þá sérstaklega
eftir samvinnu við Karlakórinn Ægi og fleiri frábæra söngvara
annarstaðar að af norðursvæði Vestfjarða.
Stjórnandi kórsins frá 1980 til sameiningar var Kjartan
Sigurjónsson fyrrum skólastjóri og organisti á Ísafirði. Síðasta
stjórn Karlakórs Ísafjarðar var þannig skipuð : Torfi Einarsson,
þáverandi lögregluvarðstjóri formaður, Finnur Finnsson kennari
ritari og Bjarni Jóhannsson viðskiptafræðingur gjaldkeri.
Karlakórsstarf á Þingeyri
Saga karlakórsstarfs á Þingeyri hófst árið 1906 þegar Bjarni
Pétursson skólastjóri barnaskólans stofnaði karlakórinn Svan og
var hann stjórnandi hans til 1914 er hann flutti búferlum til
Reykjavíkur. Einnig stofnaði hann lúðraflokk á Þingeyri árið 1910
en hljóðfæri voru fengin lánuð frá Reykjavík.
Meðal verkefna annaðist Karlakórinn Svanur ásamt sönghópi frá
Þingeyri allan söng á héraðshátíðinni á Hrafnseyri 1911 undir
stjórn Bjarna Péturssonar, ásamt því að lúðraflokkurinn spilaði
nokkur lög undir stjórn hans.
Síðustu skráðu heimildir um karlakórinn Svan eru frá
skemmtikvöldi íþróttafélagsins Höfrungs sem haldið var 3. apríl
1923, þá undir stjórn Ólafs Ólafssonar skólastjóra.
Á árunum uppúr 1930 var karlakórinn Þrestir stofnaður og var
stjórnandi hans Baldur Sigurjónsson trésmiður og organisti á
Þingeyri. Karlakórinn Þrestir hélt konserta á gamlárskvöld og
dansleiki á eftir ár hvert í fjölda ára og fór í söngferðir til
næstu byggðarlaga. Baldur Sigurjónsson starfaði sem söngstjóri og
organisti á Þingeyri í 40 ár.
Snemma árs 1976 var enn einn karlakór stofnaður á Þingeyri. Þá
stofnaði Tómas Jónsson sparisjóðsstjóri (áður skólastjóri)
Karlakór Þingeyrar og stjórnaði hann honum til 1994. Með Tómasi
störfuðu sem undirleikarar og raddþjálfarar Marie Mercer, fyrstu
árin og síðar Guðbjörg Leifsdóttir tónlistarkennari. Fékk hann oft
til kórsins gestastjórnendur og má þar meðal annarra nefna Kjartan
Sigurjónsson og séra Gunnar Björnsson.
Ýmislegt dreif á daga kórsins, meðal annars var farið í
söngferðalög til næstu byggðarlaga, sungið á Vestfjarða-kynningu á
Hótel Loftleiðum, haldnar voru söngskemmtanir „syngjandi páskar”
um nokkurra ára skeið ásamt kirkjukór, samkór og
Harmonikkuhljómsveit Þingeyrar. Á árunum 1984 og 1994 var meðal
annars farið í söngferðalög til Bíldudals. Farið var með varðskipi
frá Þingeyri til Bíldudals og haldin söngskemmtun og dansleikur á
eftir siglt heim að skemmtun lokinni.
Árið 1993 komu til Þingeyrar hjónin Guðmundur Vilhjálmsson og
Helga Aðalheiður Jónsdóttir tónlistarkennarar og tóku við stjórn
tónlistarskóla Þingeyrar. Enn á ný tók sönglíf í Dýrafirði mikinn
fjörkipp. Guðmundur stjórnaði Karlakór Þingeyrar í tvö ár. Einnig
stofnaði og stjórnaði hann lúðrasveit nemenda tónlistarskólans og
spilaði hún meðal annars, á Ísafirði og í Bolungarvík.
Karlakór Þingeyrar hefur komið fram við ýmis tækifæri
undanfarin ár undir stjórn Sigurðar G. Daníelssonar o. fl. en ekki
starfað reglulega.
Það er ljóst að af framansögðu er margt óupptalið og margra
ógetið, þar sem einungis er stiklað á stóru. Von okkar er að
fleiri upplýsingar eigi eftir að vera skráðar, okkur öllum til
ánægju.
Karlakór Þingeyrar gengur nú til samstarfs við Karlakórinn Erni
sem mun starfa á norðanverðum Vestfjörðum. Megi samstarfið eflast
og verða farsælt.
Karlakórinn Ernir, norðanverðum Vestfjörðum.
Fyrsta starfsárið 1983, hafði kórinn tvo stjórnendur þá Ólaf
Kristjánsson frá Bolungarvík og Kjartan Sigurjónsson frá Ísafirði.
Frá þessum tíma er mikið vatn til sjávar runnið og nokkrir aðilar
stjórnað Karlakórnum Erni, norðanverum Vestfjörðum og eru þeir :
Ralf Hall frá Wales, Wolfgang Tretzsch frá Þýskalandi, Guðrún
Jónsdóttir frá Hnífsdal, Hannes Baldursson úr Bolungarvík, og nú
síðast Maria Jolanta Kowalczyk frá Póllandi.
Að sjálfsögðu hefur kórinn notið margra frábærra undirleikara
og eru þeir : Guðrún Bjarnveig Magnúsdóttir frá Bolungarvík, James
Haugton frá Bretlandi, Guðbjörg Leifsdóttir frá Hnífsdal, Maria
Ciriacou frá Wales, Zsuzsanna Budai frá Ungverjalandi, Hólmfríður
Sigurðardóttir frá Ísafirði, Michael Arthur Johns frá Bretlandi og
nú Elzbieta Anna Kowalczyk frá Póllandi.
Margar tónleikaferðir hefur kórinn farið og má í því sambandi
nefna ferðir til Norðurlands, Akureyrar og Skagafjarðar, á
Suðurlandið til Reykjavíkur og Borgarfjarðar til Þingeyjarsýslu að
ógleymdum ferðum til Wales, Finnlands og Rússlands fyrir nokkrum
árum.
Karlakórinn Ernir hafði legið í dvala í nokkur ár eða þar til
að hausti 2002. Þá var ákveðið að blása til sóknar og byrjuðu
æfingar aftur það ár og var þá nýr kórstjóri ráðinn María Jolanta
Kowalczyk, ásamt píanóleikara Elzbietu Önnu Kowalczyk. Kórinn hélt
nokkra tónleika árið 2002 og var farin söngferð m.a. til
Hólmavíkur. Haldnir voru afmælistónleikar vorið 2003 þar sem
fyrstu kórstjórarnir, þeir Ólafur Kristjánsson og Kjartan
Sigurjónsson stjórnuðu nokkrum lögum og þáverandi einsöngvari
kórsins Björgvin Þórðarson söng.
|